Okkar bókhaldsþjónusta
Við bjóðum upp á alhliða bókhaldsþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Leggjum áherslu á öfluga ráðgjöf og persónuleg samskipti. Hjá Skatt bókhaldsstofu starfa viðskipta- og rekstrarfræðingar, viðurkenndur bókari og bókarar með almenna bókhaldsmenntun. Við upplýsum og minnum á, þegar skil nálgast hjá skattayfirvöldum. Hafðu samband og við svörum fljótt og örugglega. Leyfðu okkur að létta þér lífið.
Um okkur
Skatt bókhaldsstofa ehf var stofnuð árið 2011 og fagnar því 15 ára afmæli á árinu. Félagið gekk til samstarfs við SER bókhald ehf árið 2025 og starfa þau nú undir sömu regnhlíf. Á árinu 2026 erum við átta starfandi á stofunni og erum jafnframt í samstarfi við löggiltan endurskoðanda. Skrifstofan okkar er í Urðarhvarfi 8-B, 1. hæð í Kópavogi. Auðvelt aðgengi og næg bílastæði.
Við starfsfólkið
Með því að smella á mynd, þá birtast upplýsingar um okkur, sem veitum bókhaldsþjónustu. Þar má sjá okkar bakgrunn, menntun og reynslu. Endurmenntun um bókhald og skil er okkur hugleikin.
Ragnar Ulrich Valsson
Stefanía M Vilbergsdóttir
Elfa Arnbjarnardóttir
Björg Elín Pálsdóttir
Eyrún Sif Helgadóttir
Aníta Ýr Óðinsdóttir
Telma Rut Tulinius
Hafðu samband
Við svörum fljótt og örugglega.
Urðarhvarf 8.B – 1.hæð
Kópavogur, 203
Opið 9-16 mán-fim, 9-14 fös.












